Sinfónían á Myrkum // The Iceland Symphony Orchestra

26. Janúar // 26 January
19:30 // 7.30pm
Eldbog

 

EFNISSKRÁ // PROGRAM

Atli Heimir Sveinsson
Doloroso (1998) 

Kristín Þóra Haraldsdóttir
Cycles (2016) - heimsfrumflutningur / world premiere

Haukur Tómasson
Echo Chamber, víólukonsert (2015) - heimsfrumflutningur / world premiere

Hlé / pause

Úlfur Hansson
Arborescence (2016) - heimsfrumflutningur / world premiere

Thomas Adès
Polaris (2010) - Íslandsfrumflutningur / Iceland premiere
 

Einleikari / soloist: Þórunn Ósk Marinósdóttir
Stjórnandi / conductor: Petri Sakari
 

Tónleikar Sinfóníunnar á Myrkum músíkdögum eru vettvangur fyrir nýja og spennandi íslenska tónlist í bland við erlend meistaraverk. Hér hljómar nýr víólukonsert eftir Hauk Tómasson, saminn fyrir Þórunni Ósk Marínósdóttur sem er leiðandi víóluleikari SÍ og meðal fremstu tónlistarmanna landsins. Einnig verður frumflutt nýtt hljómsveitarverk eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur en verk hennar, Water's Voice, vakti mikla eftirtekt á Tectonics-tónlistarhátíð SÍ árið 2015. Verk Úlfs Hanssonar var samið fyrir Fílharmóníuhljómsveit Franska útvarpsins í kjölfar þess að hann hlaut fyrstu verðlaun í flokki ungra tónskálda á Tónskáldaþinginu 2013. Doloroso eftir Atla Heimi Sveinsson er kyrrlátur huggunar- og saknaðarsöngur, og er tileinkað minningu Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur forsetafrúar.

Breska tónskáldið Thomas Adès er einn virtasti tónlistarmaður samtímans. Hið glæsilega hljómsveitarverk hans, Polaris, er samið árið 2010. Það ber undirtitilinn „ferðalag fyrir hljómsveit“ og er innblásið af Pólstjörnunni eins og heitið gefur til kynna. Einn gagnrýnandi sagði eftir frumflutninginn að það væri „yfirgengilega fagurt“ og eru það orð að sönnu. 

//

The Dark Music Days festival has for decades been one of the main venues for contemporary Icelandic music. For this year's festival, the ISO teams up with Daníel Bjarnason and its principal violist, Þórunn Ósk Marinósdóttir, for an exciting and varied program. Atli Heimir Sveinsson is one of Iceland's leading composers; his Doloroso is a sorrowful lament that incorporates an old Icelandic funeral hymn. 

The program also features a new concerto by Haukur Tómasson, Úlfur Hansson, and a new work by the young and highly talented Kristín Þóra Haraldsdóttir. To complete the program, the Icelandic premiere of Thomas Adès' ode to the Pole Star, which received rave reviews when it was first performed in 2011.